Ársfundur AkureyrarAkademíunnar 2024

Ársfundur AkureyrarAkademíunnar 2024 fer fram miðvikudaginn 15. maí nk. og hefst kl. 19:30. Fundurinn er í húsnæði AkAk, Sunnuhlíð 12, Akureyri. Á dagskrá eru aðalfundarstörf samkvæmt 12. gr. skipulagsskrár AkAk:

1. Skýrsla stjórnar.
2. Endurskoðun reikninga.
3. Upptalning fulltrúa.
4. Kjör formanns og fulltrúaráðs.
5. Fjárhagsáætlun og árgjald.
6. Breytingar á skipulagsskrá.
7. Önnur mál.

Vakin er athygli á að samkvæmt 5. gr. skipulagsskrár er atkvæðisréttur á ársfundi bundinn við þá sem greiða árgjald, kr. 2.000, fyrir fundinn
en fundurinn er engu að síður öllum opinn.

Eftir ársfundinn verður boðið upp á léttar veitingar.