Valgerður er dönskukennari og hefur tekið þátt í stofnun tveggja framhaldsskóla, Fjölbrautaskóla Snæfellinga árið 2004 og Menntaskólans á Tröllaskaga árið 2010, ásamt því að hafa unnið að innleiðingu nýrrar námskrár frá árinu 2008. Valgerður vinnur að meistaraverkefni við Menntavísindasvið Háskóla Íslands með áætlaða útskrift í júní 2020. Rannsóknin er starfstengd sjálfsrýni (e. self-study of educational practices) þar sem höfundur skoðar faglega starfskenningu sína og þær breytingar sem hafa orðið á henni frá árinu 2004.
Menntun
|
2020
Áætluð útskrift, MEd próf í faggreinakennslu. Háskóli Íslands. 2007 Kennslufræði til kennsluréttinda. Háskólinn á Akureyri. 1999 BA-gráða í dönsku. Háskóli Íslands. 1995 Stúdentspróf. Menntaskólinn á Egilsstöðum. |
Starfsferill
|
2019-
Kennslumiðstöð Háskólans á Akureyri, verkefnastjóri. 2010- Menntaskólinn á Tröllaskaga, dönskukennari, námskrárstjóri. 2008-2010 Menntaskólinn á Akureyri, dönskukennari. 2018-2019 2004-2010 Fjölbrautaskóli Snæfellinga, dönskukennari. |