Ráðstefnur og málþing
2016 |
Fjölmiðlun í almannaþágu?ReykjavíkurAkademían ásamt Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og AkureyrarAkademíunni, stóðu fyrir málþingi 19. nóvember 2016 um fjölmiðlun í almannaþágu. Málþinginu var streymt og bauðst Akureyringum og nærsveitafólki að fylgjast með ráðstefnunni beint við Háskólann á Akureyri.
|
2016 |
Enginn er eylandAkureyrarAkademían og Háskólinn á Akureyri efndu til ráðstefnu um Ísland og alþjóðasamfélagið 19. mars 2016. Fjallað var um Ísland í samfélagi þjóðanna á breiðum grunni þar sem fram komu ólík viðhorf fræðimanna, embættismanna og félagasamtaka til málaflokksins. Ráðstefnunni var ætlað að vera vettvangur fyrir umræðu um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. En staða, áhrif og hagsmunir Íslands í alþjóðasamskiptum er eitt af mikilvægustu viðfangsefnum Íslands bæði í nútíð og framtíð.
|
2015 |
Eldsumbrot og samfélagHoluhraun flýtur og mengunarviðvaranir eru orðin hluti af daglegu lífi fólks. Rask og rót á hversdagslífi landsmanna er mismikið eftir búsetu en Holuhraun hefur sett sitt mark á þjóðina. Akureyrar Akademían ákvað að gera (elds)umbrot og áhrif þeirra á samfélagið í fortíð og nútíð að umfjöllunarefni sínu á þessari ráðsstefnu. Hún fór fram við Háskólann á Akureyri 20. mars 2015.
|