|
Grunnnám
|
Nemi í lögfræði við HA frá 2019.
B.Sc. nám í hjúkrun árið 1995 og í iðjuþjálfafræðum frá HA árið 2006. Tveggja ára nám til B.A. prófs í dönsku við HÍ árið 2000. Nám í uppeldis- og kennslufræði fyrir grunn- og framhaldsskóla frá KHÍ. Stúdentspróf frá MA árið 1974. Hjúkrunarfræðimenntun frá Sygeplejeskole í Glosstrup, Danmörku. |
Framhaldsnám
|
Meistaranám í heilbrigðisvísindum frá HA.
Meistaranám í kennslu- og lýðheilsufræðum frá HR. Upplýsingatækni í hjúkrun (IN-informatic in nursing) frá HÍ árið 1996. Uppeldis- og kennslufræði fyrir verkmenntakennara frá KHÍ árið 1989. Stjórnunarnám í hjúkrun og svæfingarhjúkrun frá Hjúkrunarskóla Íslands. |
Starfsferill
|
Kristín hefur langa reynslu af hjúkrunar- og stjórnunarstörfum við íslenskar heilbrigðisstofnanir og einnig var hún kennari í hjúkrun og skyndihjálp við Verkmenntaskólann á Akureyri með hléum frá 1984-1994. Kristín hefur jafnframt sinnt búskap frá árinu 1977 með sauðfé og hross að Litla-Dal í Eyjafirði.
|