Við í AkureyrarAkademíunni fengum í vikunni góða gesti frá skapandi sumarstörfum í Ungmennahúsinu Rósenborg. Tilefni heimsóknarinnar er samstarf AkureyrarAkademíunnar og Skapandi sumarstarfa vegna viðburðar okkar á Akureyrarvöku „samtal um hamingjuna“. Í sumar hafa ungmennin unnið að því að fanga hamingjuna hvert með sínum hætti. Það var skemmtilegt fyrir Akademóna að fá að heyra frá verkefnunum og bíðum við spennt eftir að fá að sjá afraksturinn á sýningunni. Við hvetjum alla til að mæta á sýninguna sem verður opnuð laugardaginn 27. ágúst kl 13:00 í Hlöðunni Litla-Garði.
|
Eldri fréttir
February 2021
|