"Um förumenn og flakkara"
Fyrirlestur í Safnahúsinu á Húsavík í tilefni af alþjóðlega safnadeginum þann 18. maí kl. 20:00. Dr. Sigurgeir Guðjónsson fjallar um aðstæður og æviþætti nokkurra einstaklinga á Norðurlandi á liðnum öldum sem fóru aðrar leiðir en allur fjöldinn. Einnig er varpað ljósi á samfélagið á þessum tíma og viðbrögð sveitastjórna. Sigurgeir er sjálfstætt starfandi sagnfræðingur í AkureyrarAkademíunni. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir. |