Arndís Bergsdóttir akademóni er meðal sex nýdoktora sem nýlega voru ráðnir til rannsóknarstarfa við nýstofnað Rannsóknarsetur Margrétar Þórhildar Danadrottningar og Vigdísar Finnbogadóttur fyrrum forseta Íslands um haf, loftslag og samfélag (ROCS) sem starfar við HÍ og Kaupmannahafnarháskóla og er Arndís jafnframt verkefnastýra á Íslandi.
Fimmtudaginn 14. janúar sl. voru Margrét Guðmundsdóttir og Þórarinn Hjartarson sagnfræðingar og akademónar með fyrirlestur fyrir íbúa á öldrunarheimilum Akureyrarbæjar.
Fyrirlesturinn hét: "Sigríður á Tjörn. Lífsganga sveitakonu. Myndbrot og minningar". Fyrirlesturinn byggðist á textum sem börn Sigríðar hafa safnað og gefið út í bók sem Sigríður hefur skrifað og viðtölum sem hafa verið tekin við hana. Fjallað var um minningar Sigríðar um æsku og uppvöxt í Skagafirði, lesnar stuttar glefsur úr sendibréfum sem hún ritaði og sýndar myndir úr lífi hennar. Gert er ráð fyrir að næsti fyrirlestur í fyrirlestraröð akademóna fyrir íbúa á öldrunarheimilunum verði í næsta mánuði. Dr. Sigurgeir Guðjónsson sagnfræðingur og akademóni birti nýlega grein í Vefni, Vefriti félags um 18. aldar fræði https://www.vefnir.is/
Greinin heitir: „Jón Hjaltalín landlæknir og vandi geðveiks fólks á Íslandi“. Jón Hjaltason sagnfræðingur og akademóni var með fyrirlestur fyrir íbúa á öldrunarheimilum Akureyrarbæjar 10. desember sl. Fyrirlestrinum var streymt vegna kóvít-19 og bar hann heitið: "Markús Ívarsson; saga Eyfirðings sem var á flótta undan réttvísinni í tæp fjörutíu ár".
Næstu fyrirlestrar í fyrirlestraröð akademóna fyrir íbúa á öldrunarheimilunum fara fram í janúar og febrúar á nýju ári. Fréttabréf AkureyrarAakdemíunnar hafa hafið göngu sína og er stefnt að því að þau komi út að jafnaði mánaðarlega.
Þau eru send til fulltrúa AkAk og samstarfsaðila stofnunarinnar. Tilgangurinn er að miðla upplýsingum um það helsta sem er efst á baugi í starfinu hverju sinn hjá AkAk og að styrkja gagnkvæm tengsl og samskipti. |
Eldri fréttir
April 2021
|