
Boðið verður upp á fjögur erindi í Fyrirlestrarröð AkureyrarAkademíunnar og Öldrunarheimilanna í vetur. Tvö erindi hafa verið haldinn en Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur, fjallaði um baráttuleiðir eyfiskra kvenna á fyrri helmingi 20. aldar í nóvember og Jón Hjaltason, sagnfræðingur, fjallaði um stærstu bruna á Akureyri síðastliðinn föstudag.
Dr. Sigurgeir Guðjónsson, sagnfræðingur, flytur erindi undir yfirskriftinni "Um förumenn og flakkara" sem haldið verður þann 10. febrúar á næsta ári. Síðasta erindi fyrirlestraraðarinnar flytur Arndís Bergsdóttir, safnafræðingur, þann 17. mars 2017 þar sem hún mun fjalla um konurnar í verksmiðjunum á Akureyri.