AkureyrarAkademían
Hafa samband
  • Forsíða
    • Fréttir
  • Viðburðir
    • Kynningar
    • Fyrirlestrar
    • Námskeið
    • Ráðstefnur og málþing >
      • Innanhúsfólk
  • Fræðastarf
    • Rannsóknir á vettvangi AkAk
  • akureyrarakademían
    • Framkvæmdastjóri
    • Vinnuaðstaða
    • Stjórn
    • Skipulagsskrá
    • Skjalasafn
    • Gerast fulltrúi
  • Tenglar
  • Innanhúsfólk

 Fimmtudagsfyrirlestur 18. febrúar: Hljóðlátir valdaleikir og skapandi þögn

8/2/2016

 
Picture
Njörður Sigurjónsson, dósent í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst, flytur okkur næsta fimmtudagsfyrirlestur.  Erindið ber yfirskriftina Hljóðlátir valdaleikir og skapandi þögn. 

Þögn hefur marvíslega merkingu og notagildi, allt eftir samhengi og áhrifum. Í fræðum tengdum skipulagsheildum er þögn þó almennt skilgreind sem vandamál, lamandi ástand sem kemur í veg fyrir að nauðsynlegum upplýsingum er miðlað eða að horfst sé í augu við aðsteðjandi ógnir. Í listastofnunum, svo sem eins og listasöfnum, leikhúsum og tónleikasölum, er þögnin afturámóti hin mótasagnakennda forsenda miðlunar og túlkunar. Hún skapar rými fyrir hlustun og umhugsun og tengist kjarna starfseminnar sem er að skapa umgjörð fyrir verkið eða gripinn sem er miðlægur í öllu starfi. Í erindinu er gerð grein fyrir rannsókn á hlutverki þagnar í störfum tengdum menningu, sköpun og listum. Stuðs er við vettvangsheimsóknir, viðtöl og hlutagreiningu, en aðferðafræðileg nálgun fagurfræði skipulagsheilda er lögð til grundvallar. Í samræmi við þá hefð er markmið með rannsókninni er að niðurstöður séu ekki eingöngu greinandi á hinn lokaða veruleika skipulagsheildar heldur hafi víðari skírskotun og veki spurningar um stjórnunarþekkingu.  Hugtakið sjálft, þögnin, afstaða hennar og sjónarhorn, er þannig leið til þess að vekja spurningar um hið gefna.

Njörður Sigurjónsson, er dósent í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst en áður starfaði hann meða annars sem sýningastjóri við Íslensku óperunna, framkvæmdastjóri Bókmenntasjóðs og markaðsstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Njörður er með BA próf í heimspeki og M.Sc. í alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands, auk doktorsprófs  í menningarstefnu og -stjórnun (Cultural Policy and Management) frá City University, London.  

Viðburðurinn verður í Deiglunni, fimmtudaginn 18. febrúar kl. 17. 
Allir velkomnir - ávextir á borðum.


    RSS Feed

    Eldri fréttir

    February 2023
    January 2023
    December 2022
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    June 2022
    May 2022
    April 2022
    February 2022
    January 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    July 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    September 2019
    August 2019
    July 2019
    June 2019
    May 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    September 2018
    August 2018
    July 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    June 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    September 2016
    August 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015

AkureyrarAkademían / Sunnuhlíð 12 / 603 Akureyri  / Sími: 833 9861