Þriðjudaginn 29. nóvember flytur Dr. Sigurgeir Guðjónsson, sagnfræðingur og fulltrúi í AkureyrarAkademíunni, erindið "Aðbúnaður geðveikra á Íslandi og umbætur yfirvalda fyrir daga geðspítala". Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands kl. 12:05. Í erindinu rekur Sigurgeir rannsóknarhefðir nágrannalandanna í geðheilbrigðissögu. Í kjölfarið verður kynnt hvaða kenningar liggja til grundvallar rannsókninni og hverju var hafnað. Við rannsóknina var notast við margvíslegar heimildis s.s. opinber gögn og efni frá einstaklingum. Bæði var stuðst við textagreiningu (eigindleg nálgun) og megindlega nálgun (sbr manntöl og aðrar tölulegar upplýsingar. Uppbygging ritgerðarinnar og tímarammi ásamt niðurstöðum verða kynntar. Að lokum verður varpað ljósi á hvaða þýðingu rannsóknin hefur fyrir íslenska sagnfræði. |
|
Eldri fréttir
January 2023
|