Þann 4. júní síðastliðinn var svo komið að því að Valgerður varði doktorsverkefni sitt við hátíðlega athöfn. Á vörninni spunnust áhugaverðar umræður um viðfangsefni Valgerðar og rannsóknir hennar í víðu samfélagslegu samhengi. Við fyrrum samstarfsfólk Valgerðar í AkureyrarAkademíunni erum glöð og stolt af þessum mikla áfanga sem Valgerður hefur nú lokið og það hefur verið gefandi og lærdómsríkt að fá að fylgjast með ferlinu. Valgerður hefur jafnframt verið fyrirmyndar félagi á þessum tíma og meðal annars starfað sem formaður og ritari í stjórn AkAk og hefur setið í fulltrúaráði.
Síðastliðin ár hefur Valgerður S. Bjarnadóttir starfað í AkureyrarAkademíunni meðan hún hefur stundað doktorsnám við deild menntunar- og margbreytileika við menntavísindasvið Háskóla Íslands og rannsakað áhrif nemenda í íslenskum framhaldsskólum.
Þann 4. júní síðastliðinn var svo komið að því að Valgerður varði doktorsverkefni sitt við hátíðlega athöfn. Á vörninni spunnust áhugaverðar umræður um viðfangsefni Valgerðar og rannsóknir hennar í víðu samfélagslegu samhengi. Við fyrrum samstarfsfólk Valgerðar í AkureyrarAkademíunni erum glöð og stolt af þessum mikla áfanga sem Valgerður hefur nú lokið og það hefur verið gefandi og lærdómsríkt að fá að fylgjast með ferlinu. Valgerður hefur jafnframt verið fyrirmyndar félagi á þessum tíma og meðal annars starfað sem formaður og ritari í stjórn AkAk og hefur setið í fulltrúaráði. |
Eldri fréttir
February 2023
|