Margrét Guðmundsdóttir akademóni og sagnfræðingur er höfundur kafla í bókinni þar sem hún ræðir um störf kvenna – bæði launuð og ólaunuð – og bjargráð þeirra í baráttunni fyrir betra lífi eða einfaldlega til að lifa af. Saga formæðra okkar er borin saman við flókið og margbreytilegt líf ungra kvenna í samtímanum. Mæður þeirra, ömmur eða langömmur tóku sér orðið kulnun aldrei í munn. Langmæðgur okkar lögðust hins vegar sumar í kör og risu jafnvel ekki upp úr fletum sínum um lengri eða skemmri tíma. Þær fundu þrátt fyrir allt leið til að mæta erfiðum og þungbærum aðstæðum.
Bókin Þegar kona brotnar - og leiðin út í lífið á ný eftir Sigríði Arnardóttur (Sirrý) kom út árið 2019 í samstarfi við VIRK starfsendurhæfingu og fyrir skömmu sem hljóðbók. Þar segja 12 konur sögu sína af því að kulna, brotna, örmagnast og hvernig þær finna lífsgleðina og starfsorkuna á ný.
Margrét Guðmundsdóttir akademóni og sagnfræðingur er höfundur kafla í bókinni þar sem hún ræðir um störf kvenna – bæði launuð og ólaunuð – og bjargráð þeirra í baráttunni fyrir betra lífi eða einfaldlega til að lifa af. Saga formæðra okkar er borin saman við flókið og margbreytilegt líf ungra kvenna í samtímanum. Mæður þeirra, ömmur eða langömmur tóku sér orðið kulnun aldrei í munn. Langmæðgur okkar lögðust hins vegar sumar í kör og risu jafnvel ekki upp úr fletum sínum um lengri eða skemmri tíma. Þær fundu þrátt fyrir allt leið til að mæta erfiðum og þungbærum aðstæðum. |
Eldri fréttir
January 2023
|