Bergljót Þrastardóttir, stjórnarformaður, byrjaði fundinn og flutti skýrslu stjórnar þar sem fjallað var um það helsta á starfsárinu. Ólafur B. Thoroddsen, gjaldkeri, kynnti endurskoðaðan ársreikning stofnunarinnar og svaraði spurningum fundarmanna. Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri, taldi upp nýja fulltrúa.
Fulltrúaráð AkAk er skipað sjö fulltrúum og þrír þeirra mynda stjórn. Í fulltrúaráði starfsárið 2018-2019 voru kosin:
Bergljót Þrastardóttir, stjórnarformaður
Steinunn Arnars Ólafsdóttir, ritari
Ólafur B. Thoroddsen, gjaldkeri
Dr. Arndís Bergsdóttir
Dr. Martina Huhtamaki
Dr. Sigurgeir Guðjónsson
Valgerður S. Bjarnadóttir
Farið var yfir fjárhagsáætlun stofnunarinnar og jafnframt ákveðið að árgjald yrði óbreytt milli ára. Í lok fundar var rætt um verkefni sem eru á döfinni svo sem vorhreinsun, vorfagnað og LÝSU.