AkureyrarAkademían
Hafa samband
  • Forsíða
    • Fréttir
  • Viðburðir
    • Kynningar
    • Fyrirlestrar
    • Námskeið
    • Ráðstefnur og málþing >
      • Innanhúsfólk
  • Fræðastarf
    • Rannsóknir á vettvangi AkAk
  • akureyrarakademían
    • Framkvæmdastjóri
    • Vinnuaðstaða
    • Stjórn
    • Skipulagsskrá
    • Skjalasafn
    • Gerast fulltrúi
  • Tenglar
  • Innanhúsfólk

Konur taka af skarið á Akureyri

12/11/2018

 
Það var líf og fjör á laugardag í sal Einingar-iðju þar sem konur á Norðurlandi hittust til skrafs og ráðagerða. Tilefnið var námskeiðið „Konur taka af skarið!“ sem AkureyrarAkademían, Jafnréttisstofa, Starfsgreinasambandið og JCI Sproti standa fyrir. Verkefnið fékk styrk úr Jafnréttissjóði Íslands og er markmið þess að hvetja konur til þátttöku og áhrifa innan verkalýðshreyfingarinnar.

Viðamikil dagskrá var á námskeiðinu sem er hugsað sem samræðuvettvangur þar sem innlegg um ákveðin málefni koma frá fyrirlesurum en þátttakendur miðla af sinni viðamiklu reynslu og þekkingu ekki síður en fyrirlesararnir. Dagskráin hófst á því að Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, hélt erindi um kynjakerfið undir yfirskriftinni „Að bjóða kynjakerfinu birginn“. Næst fjallaði Drífa Snædal, forseti ASÍ, um stöðu verkalýðsbaráttunnar í dag og lýsti uppbyggingu verkalýðsfélaganna. Viktor Ómarsson, hjá JCI Sprota, sá um leiðtogaþjálfun og fjallaðu um hvernig er hægt að hafa áhrif og koma sínu á framfæri. Viktor fékk þátttakendur í margskonar æfingar og verkefni sem reyndu á. Síðasti hluti námskeiðsins var í höndum Drífu Snædal sem ræddi við þátttakendur um sína reynslu af því að vera kona og starfa innan verkalýðshreyfingarinnar. Bergljót Þrastardóttir, stjórnarformaður AkureyrarAkademíunnar var fundarstjóri.

Námskeiðið á laugardag er fyrsta námskeiðið af sex en samskonar námskeið verða haldin á Egilsstöðum, Selfossi, Reykjavík, Ísafirði og Borgarnesi. Námskeiðin eru opin öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitarfélaganna, þeim að kostnaðarlausu. 

Konur taka af skarið! Akureyri

6/11/2018

 
AkureyrarAkademían, Jafnréttisstofa, Starfsgreinasambandið og JCI Sproti standa fyrir námskeiðunum "Konur taka af skarið!" á sex stöðum á landinu. Verkefnið hlaut styrk úr Jafnréttissjóði Íslands og er markmið þess að hvetja konur til þátttöku og til áhrifa innan verkalýðshreyfingarinnar. 

Fyrsta námskeiðið fer fram í sal Einingar- iðju laugardaginn 10. nóvember frá 10:00-17:00. Námskeiðið er opið öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitafélaganna, þeim að kostnaðarlausu. Skráning skal berast í síðasta lagi fimmtudaginn 8. nóvember á netfangið: kristinheba@akak.is eða í síma: 461 4006.


Picture

    RSS Feed

    Eldri fréttir

    February 2023
    January 2023
    December 2022
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    June 2022
    May 2022
    April 2022
    February 2022
    January 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    July 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    September 2019
    August 2019
    July 2019
    June 2019
    May 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    September 2018
    August 2018
    July 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    June 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    September 2016
    August 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015

AkureyrarAkademían / Sunnuhlíð 12 / 603 Akureyri  / Sími: 833 9861