
Fréttabréf AkureyrarAkademíunnar september 2022 |
Nýtt fréttabréf AkAk er komið út og þar er greint frá helstu tíðindum í starfinu frá því að síðasta fréttabréf var sent út í júní sl. Í Fréttabréfinu er einnig pistill eftir Gunnar Árnason en hann er félagi í AkAk og deildarstjóri í þjónustukjarna Akureyrarbæjar. ![]()
Fyrirlestur Valgerðar H. Bjarnadóttur um Davíð Stefánsson skáld: Þrítugur dæmdur, sextugur heiðraður – Davíð Stefánsson á Akureyri.
Fyrirlesturinn fer fram miðvikudaginn 7. september nk., í sal Félags eldri borgara á Akureyri, Bugðusíðu 1, og hefst kl. 16:30. Í fyrirlestrinum ætlar Valgerður H. Bjarnadóttir, félagi í AkureyrarAkademíunni og fyrrum húsfreyja í Davíðshúsi, að fara í ferð um Akureyri í hugarheimi, mæltu máli og skáldverkum Davíðs Stefánssonar. Fyrirlesturinn er hluti viðburðaraðar AkureyrarAkademíunnar á þessu ári í tilefni af 160 ára afmæli Akureyrarbæjar. Menningarsjóður Akureyrar styrkir fyrirlesturinn. Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir. |
Eldri fréttir
January 2023
|