Ólöf María Birnu Brynjarsdóttir er meistaranemi við HA og starfar í AkureyrarAkademíunni. Miðvikudaginn 20. september kl. 12:00 mun Ólöf halda fyrirlestur á Félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri. Í erindinu, Sjálfs-ást og birtingarmyndir hennar, verður fjallað um kjarna manneskjunar - sjálfið - sem oft virðist mæta afgangi í nútímasamfélagi. Félagsvísindatorgið er öllum opið án endurgjalds. |
Síðastliðinn föstudag var Fundur fólksins haldinn á Akureyri. AkureyrarAkademían, Umhverfisstofnun og Neytendasamtökin stóðu fyrir fræðslu um umhverfismál undir yfirskriftinni "Það minnsta sem þú getur gert! Grænn lífstíll, umhverfismerki og siðræn neysla.
Elva Rakel Jónsdóttir, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun, og Brynhildur Pétursdóttir, fulltrúi hjá Neytendasamtökunum, héldu erindi í kjölfar þeirra sköpuðust áhugaverðar umræður. Á morgun hefst lýðræðishátíðin Fundur fólksins, sem í ár verður haldinn í Hofi Akureyri.
AkureyrarAkademían, ásamt Umhverfisstofnun og Neytendasamtökunum, stendur fyrir viðburðinum "Það minnsta sem þú getur gert! Grænn lífstíll, umhverfismerki og siðræn neysla". kl. 12:30 í Dynheimum Hofi, á morgun. Dagskrá fundarins er full af áhugaverðum viðburðum. Við hverjum ykkur til að fjölmenna í Hof og taka virkan þátt.
|
Eldri fréttir
February 2023
|