AkureyrarAkademían
Hafa samband
  • Forsíða
    • Fréttir
  • Viðburðir
    • Kynningar
    • Fyrirlestrar
    • Námskeið
    • Ráðstefnur og málþing >
      • Innanhúsfólk
  • Fræðastarf
    • Rannsóknir á vettvangi AkAk
  • akureyrarakademían
    • Framkvæmdastjóri
    • Vinnuaðstaða
    • Stjórn
    • Skipulagsskrá
    • Skjalasafn
    • Gerast fulltrúi
  • Tenglar
  • Innanhúsfólk

Opið hús hjá AkureyrarAkademíunni

22/8/2022

 
Picture
Í tilefni af Akureyrarvöku verður AkureyrarAkademían með opið hús í húsakynnum sínum að Sunnuhlíð 12, laugardaginn 27. ágúst, kl. 14:00 til 16:00. Þá ætlum við að kynna starfsemina okkar og sýna vinnuaðstöðuna.

Allir eru velkomnir í heimsókn. Heitt á könnunni og meðlæti.

AkureyrarAkademían er þverfaglegt samfélag háskólanema, sjálfstætt starfandi fræðimanna, listafólks og frumkvöðla sem vinna að fjölbreyttum og skapandi verkefnum. Við bjóðum upp á góða aðstöðu, hvetjandi umhverfi og skemmtilegan starfsanda. Við tökum vel á móti þér! 

Sjá nánari upplýsingar um opna húsið í viðburðadagatali Akureyrarvöku. 
Picture
Picture
Picture

Komdu með í skólasögustrætó 28. ágúst!

22/8/2022

 
Picture
Í tilefni af 160 ára afmæli Akureyrarbæjar verður boðið upp á leiðsögn í skólasögustrætó og gönguferð á Akureyrarvöku þar sem fjallað verður um menntun og frístundir barna á Akureyri fyrstu 100 árin í sögu bæjarins með áherslu á leikvelli, barnaheimili/leikskóla, smábarnaskóla og barnaskóla.

Skólasögustrætóinn gengur sunnudaginn 28. ágúst kl. 10:00 og kl. 13:00 og verður lagt af stað frá strætisvagnastöðinni í miðbænum hjá BS0. Hver hringur tekur um tvær klst.

Leiðsögumenn eru Aðalheiður Steingrímsdóttir, Hanna Rósa Sveinsdóttir og Sesselja Sigurðardóttir.

Skólasögustrætóinn er samstarfsverkefni AkureyrarAkademíunnar, Minjasafnsins á Akureyri og Strætisvagna Akureyrar. Menningarsjóður Akureyrar styrkir viðburðinn. 

Sjá nánari upplýsingar í viðburðadagatali Akureyrarvöku 

Picture
Picture
Picture
Picture

Opið fyrir umsóknir í Vaxtarrými fyrir norðlenska sprota

16/8/2022

 
Picture
Nýsköpunarhreyfingin Norðanátt býður nú upp á öflugt Vaxtarrými í annað sinn. Vaxtarrými er átta vikna viðskiptahraðall beint að sjálfbærni, með áherslu á mat, vatn og orku þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakinu. Vaxtarrými hefst 3. október og lýkur 24. nóvember með veglegum lokaviðburð þar sem þátttökuteymin sem halda fjárfestakynningar.

Hraðallinn fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast fjórum sinnum meðan á verkefninu stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Þátttakendur kynnast reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja á Norðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Leitast er eftir þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Vaxtarrými Norðanáttarinnar til að vaxa. 

Átta teymi tóku þátt í Vaxtarrými 2021 og stendur þeim til boða að taka þátt sem svokallaðir Alumni frumkvöðlar og sitja fræðslufundi og leiðbeina árganginum í ár. Þannig má skapa virkt frumkvöðlasamfélag með jafningjaráðgjöf á Norðurlandi. 

Kynningarfundur Vaxtarrýmis fer fram 13. september í gegnum netið - Auglýst nánar þegar nær dregur.

Umsóknarfrestur er til og með 19. september. Í framhaldinu verða valin sex til átta teymi til þátttöku.

Sjá umsóknarform og nánari upplýsingar á vefsíðu Norðanáttar Nordanatt.is 

Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið umhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Að verkefninu Norðanátt koma Eimur, SSNV, SSNE og RATA.

Ert þú frumkvöðull sem vantar vinnuaðstöðu?

12/8/2022

 
Picture













​
​









​AkureyrarAkademían auglýsir eftir umsóknum um vinnuaðstöðu til að vinna að nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefnum í samstarfi við Akureyrarbæ. 

Vinnuaðstaðan er án endurgjalds og hugsuð sem styrkur til viðkomandi verkefna. Aðstaðan er í húsnæði AkureyrarAkademíunnar Sunnuhlíð 12. Tímabil sem auglýst er til úthlutunar eru sex mánuðir frá 1. september til 28. febrúar. Umsóknir um heil tímabil hafa að öðru jöfnu forgang en heimilt er að úthluta vinnuaðstöðu til skemmri tíma. Verklagsreglur um stuðninginn má finna hér.

Við mat á umsóknum er m.a. tekið mið af eftirfarandi þáttum:
  • Nýsköpunargildi verkefnis. 
  • Verkefnið sé í þróun, eiginleg starfsemi ekki hafin og að það sé ekki í samkeppni við starfsemi sem fyrir er á markaði. 
  • Verkefnið falli vel að starfsemi AkureyrarAkademíunnar. 

AkureyrarAkademían er þverfaglegt samfélag háskólanema, sjálfstætt starfandi fræðimanna, listafólks og frumkvöðla sem vinna að fjölbreyttum og skapandi verkefnum. Við leggjum áherslu á góða aðstöðu, hvetjandi umhverfi og skemmtilegan starfsanda. Við tökum vel á móti þér! 

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst nk. 

Nánari upplýsingar er að fá hjá AkureyrarAkademíunni í síma 833-9861. 

Picture
Picture

    RSS Feed

    Eldri fréttir

    February 2023
    January 2023
    December 2022
    November 2022
    October 2022
    September 2022
    August 2022
    June 2022
    May 2022
    April 2022
    February 2022
    January 2022
    November 2021
    October 2021
    September 2021
    July 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    September 2019
    August 2019
    July 2019
    June 2019
    May 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    September 2018
    August 2018
    July 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    June 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    December 2016
    November 2016
    September 2016
    August 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015

AkureyrarAkademían / Sunnuhlíð 12 / 603 Akureyri  / Sími: 833 9861