Síðastliðinn laugardag þáði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, heimboð í AkureyrarAkademíuna og kynnti sér starfsemina. Lilja er fyrsti menntamálaráðherran sem heimsækir AkAk og var mjög ánægjulegt að taka á móti henni og finna einlægan áhuga hennar á starfseminni.
AkureyrarAkademían tekur þátt í LÝSU - rokkhátið samtalsins - í annað sinn. Í ár er viðfangsefnið streita og kulnun í starfi.
Umræðan um streitu og kulnun í starfi hefur verið áberandi í íslenskum fjölmiðlum og víðar upp á síðkastið. Mikil streita getur haft alvarlegar neikvæðar afleiðingar og mikilvægt að sporna við fjarveru frá vinnu af völdum streitu og kulnunar. Á LÝSU mun AkureyrarAkademían í samstarfi við VIRK starfsendurhæfingu, Háskólann á Akureyri og Akureyrarbæ standa fyrir viðburðinum "Kulnun er ekki einkamál!". Þar mun Inga Dagný Eydal, hjúkrunarfræðingur, segja frá sinni reynslu af kulnun í erindinu "Þegar streitan yfirtekur allt". Hildur Petra Friðriksdóttir, ráðgjafi hjá VIRK, fjallar um kulnun og starfsendurhæfingu og að lokum mun Hjördís Sigursteinsdóttir, dósent við HA, fjalla um niðurstöður rannsókna sinna á heilsu og líðan í lok vinnudags meðal starfsfólks sveitafélaganna. Að loknum erindunum verður boðið upp á pallborð og umræður undir stjórn Karls Frímannssonar, fræðslustjóra Akureyrarbæjar. |
Eldri fréttir
February 2023
|