Starfsaðstöðunni fylgja skrifstofuhúsgögn, nettenging, aðgangur að prentara og sameiginlegri aðstöðu eins og fundaherbergi og eldhúsaðstöðu.
Gert er ráð fyrir að starfsaðstaðan verði auglýst laus til umsóknar til sex mánaða í senn fyrir einstaklinga sem vinna að verkefnum á sviði nýsköpunar eða frumkvöðlastarfs og að í haust verði auglýst í fyrsta skipti eftir umsóknum.
Samningsaðilar hafa jafnframt sett verklagsreglur um auglýsingar og hvernig verður staðið að vali á þeim einstaklingum sem fá inni hjá Akademíunni hverju sinni .

Samstarfssamningur Akureyrarbæjar og AkureyrarAkademíunnar 25. maí 2021 |

Fylgiskjal með samstarfssamningi Akureyrarbæjar og AkureyrarAkademíunnar 25. maí 2021: Verklagsreglur |