Ársfundur AkureyrarAkademíunnar 2020 var haldinn 20. maí sl. Stjórn AkAk var endurkosin fyrir starfsárið 2020-2021 og skipa hana eins og áður Steinunn A. Ólafsdóttir formaður, Ólafur B. Thoroddsen gjaldkeri og Sigurgeir Guðjónsson ritari. Í fulltrúaráð AkAk 2020-2021 voru kosnar Dr. Arndís Bergsdóttir, Bergljót Þrastardóttir, Dr. Martina Huhtamaki og Dr. Valgerður S. Bjarnadóttir. Á fundinum var ennfremur lögð fram skýrsla stjórnar um starfsárið 2019-2020, ársreikningur AkAk 2019, rekstraráætlun AkAk fyrir árið 2020 og samþykktar breytingar á skipulagsskrá stofnunarinnar.
Akademóninn Dr. Sigurgeir Guðjónsson hefur tekið að sér setu í ritstjórn um birtingu ritdóma í ritinu 1700-tal sem er norrænt sagnfræðirit sem sérhæfir sig í umfjöllun um 18. öld. Sigurgeir er fulltrúi Félags um 18. aldar fræði á Íslandi í ritnefndinni.
Árbók Ferðafélags Íslands 2020, sem fjallar um Rauðasandshrepp hinn forna, er nýkomin út. Bókin fjallar um svæðið frá Tálkna í norðri að Stálfjalli í suðri. Fyrir þá sem ekki átta sig á þessum örnefnum þá nær svæðið yfir Patreksfjörð, Rauðasand, Látrabjarg og Útvíkur sem eru Látravík, Breiðavík og Kollsvík. Í bókinni er fjallað um landið, náttúrufar og fornar leiðir um héraðið og svo söguna þar sem mannlíf, útgerð og sjósókn skipa öndvegi.
Annar aðalhöfundur bókarinnar er Akademóninn, Ólafur B. Thoroddsen, en hinn aðalhöfundurinn er Gísli Már Gíslason prófessor í líffræði við Háskóla Íslands. Báðir rekja þeir ættir til Rauðasandshrepps hins forna. Ólafur er fæddur og uppalinn á Patreksfirði og var mörg sumur í sveit á Hvallátrum og Gísli Már ólst að hluta til upp á Hvallátrum en er Reykvíkingur. Bókin er prýdd mörgum myndum af svæðinu og flestar þeirra tók Daníel Bergmann sem er ljósmyndari með meiru. Á meðfylgjandi mynd er hampar Ólafur bókinni góðu eftir áritun nokkurra eintaka fyrir Ferðafélag Íslands. Með honum á myndinni er Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Fí og Þóra Ákadóttir (eiginkona Ólafs) sem bauð til vöfflukaffis í tilefni af útkomu bókarinnar. Ársfundur AkAk 2020 verður haldinn miðvikudaginn 20. maí nk. í húsnæði stofnunarinnar Sunnuhlíð 12, Akureyri og er dagskráin eftirfarandi:
Fundur hefst kl. 20:00 á því að fundarmenn kjósa ritara og fundarstjóra. Steinunn A. Ólafsdóttir býður sig fram sem ritari og Sigurgeir Guðjónsson býður sig fram sem fundarstjóri. Dagskrá ársfundar er eftirfarandi:
|
Eldri fréttir
February 2023
|