Talsverðar breytingar urðu á högum AkureyrarAkademíunnar á vordögum þegar stofnunin flutti úr Árholti. Það hefur farið vel um akademóna í Árholti undanfarin ár enda góður andi í húsinu. Þar voru skrifaðar bækur, unnið að doktors- og meistaraverkefnum og öðrum rannsóknarverkefnum og talsverður hópur meistaranema kláraði lokaverkefni sín í Árholti og nokkrir doktorsnemar einnig. AkureyrarAkademían kveður því Árholt eftir gjöful og góð ár. AkureyrarAkademían er nú staðsett á Glerárgötu 34 og deilir húsnæði með Frumkvöðlasetrinu Verksmiðjunni.
|
Eldri fréttir
February 2023
|