
Fréttabréf AkureyrarAkademíunnar febrúar 2022 |
Nýtt fréttabréf AkAk er komið út og þar er greint frá helstu tíðindum í starfinu frá því að síðasta fréttabréf var sent út í nóvember sl. og einnig er þar skemmtilegur pistill eftir dr. Martinu Huhtamäki, lektor í norrænum málum við Háskólann í Helsinki, sem heitir Tíminn minn í AkureyrarAkademíunni. ![]()
Minnt er á að enn er hægt að sækja um vinnuaðstöðuna. Gríptu þetta frábæra tækifæri og sæktu um!
AkureyrarAkademían auglýsir eftir umsóknum um vinnuaðstöðu til að vinna að þróun nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefna í samstarfi við Akureyrarbæ. Vinnuaðstaðan er í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, Sunnuhlíð 12, og er án endurgjalds og hugsuð sem styrkur til viðkomandi verkefna. Tímabil sem auglýst er til úthlutunar eru sex mánuðir frá 1. mars til 31. ágúst. Umsóknir um heil tímabil hafa að öðru jöfnu forgang en heimilt er að úthluta vinnuaðstöðu til skemmri tíma. Við mat á umsóknum er m.a. tekið mið af eftirfarandi þáttum:
Nánari upplýsingar er að fá hjá AkureyrarAkademíunni í síma 833-9861. Fyrir skömmu fékk AkureyrarAkademían styrk hjá Menningarsjóði Akureyrar til að vera með fyrirlestra og sögugöngu fyrir bæjarbúa í tengslum við 160 ára afmæli Akureyrarbæjar á þessu ári. Sögugangan er í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri.
Markmiðið með viðburðunum er að:
Við hjá AkureyrarAkademíunni þökkum Menningarsjóði Akureyrar kærlega fyrir stuðninginn og hlökkum til að bjóða bæjarbúum upp á skemmtilega og fræðandi viðburði. Þann 17. febrúar úthlutaði Norðurorka hf. styrkjum til samfélagsverkefna. AkureyrarAkademían fékk styrk til að halda fyrirlestra fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna á Akureyri á þessu ári sem verða líka opnir fyrir aðra bæjarbúa.
Markmiðið með fyrirlestrunum er að bjóða íbúum heimilanna og öðrum bæjarbúum upp á fræðandi fyrirlestra þar sem fjallað er um fjölbreytt viðfangsefni með aðgengilegum og áhugaverðum hætti. Við hjá AkureyrarAkademíunni þökkum Norðurorku hf. kærlega fyrir stuðninginn. Við hjá AkureyrarAkademíunni fengum góða gesti til okkar í gær, 17. febrúar, en þá kom Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarmála í heimsókn með fríðu föruneyti til að kynna sér starfsemi Akademíunnar.
Við þökkum ráðherra kærlega fyrir heimsóknina og hlökkum til samstarfs um rannsóknir og nýsköpun. |
Eldri fréttir
February 2023
|