Fyrirlesturinn hét: "Sigríður á Tjörn. Lífsganga sveitakonu. Myndbrot og minningar". Fyrirlesturinn byggðist á textum sem börn Sigríðar hafa safnað og gefið út í bók sem Sigríður hefur skrifað og viðtölum sem hafa verið tekin við hana. Fjallað var um minningar Sigríðar um æsku og uppvöxt í Skagafirði, lesnar stuttar glefsur úr sendibréfum sem hún ritaði og sýndar myndir úr lífi hennar.
Gert er ráð fyrir að næsti fyrirlestur í fyrirlestraröð akademóna fyrir íbúa á öldrunarheimilunum verði í næsta mánuði.