Síðastliðinn föstudag ræddu Bergljót Þrastardóttir, stjórnarformaður AkAk, og Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri um "Konur upp á dekk! Hagnýt fræðsla og samræðuþing um stjórnmál" í Föstudagsþættinum á N4. Nú standa yfir skráningar á seinni daginn og geta áhugasamir skráð sig með því að senda tölvupóst á kristinheba@akak.is
AkureyrarAkademían, Jafnréttisstofa og JCI sproti standa fyrir "Konur upp á dekk! Hagnýt fræðsla og samræðuþing" laugardagana 27. janúar og 3. febrúar á Borgum við Norðurslóð frá 10 til 15 báða dagana. Athugið að þátttökugjald er 3000 kr og er nauðsynlegt að skrá sig með því að senda tölvupóst á kristinheba@akak.is
Síðastliðinn vetur stóð AkureyrarAkademían fyrir fræðandi fyrirlestraröð á oldrunarheimilum bæjarins. Verkefnið gafst vel og vakti ánægju meðal íbúa á öldrunarheimilunum og meðal þeirra fræðimanna sem tóku þátt í verkefninu. AkureyrarAkademían mun í vetur standa fyrir samskonar fyrirlestraröð og hlaut vegna þess samfélagsstyrk Norðurorku árið 2018.
Hefur þú áhuga á stjórnmálum og málefnum samfélagsins og langar að taka þátt?
Laugardagana 27. janúar og 3. febrúar munu AkureyrarAkademían, Jafnréttisstofa og JCI sproti standa fyrir hagnýtri fræðslu og samræðuþingi um stjórnmál fyrir konur. Nánari dagskrá auglýst síðar. |
Eldri fréttir
February 2023
|