Þann 6. janúar hlaut AkureyrarAkademían styrk úr samfélagssjóði Norðurorku vegna verkefnisins og kemur styrkurinn sér að góðum notum til fjármögnunar á þessu nýja verkefni. Nú þegar hafa tvö erindi verið haldin í fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar og Öldrunarheimilanna og hafa þau verið vel sótt og vakið mikla ánægju. Áður hafði verkefnið hlotið styrk úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA.
Dr. Sigurgeir Guðjónsson, sagnfræðingur, mun flytja næsta erindi fyrirlestraraðarinnar sem ber heitið „Um förumenn og flakkara“ föstudaginn 10. febrúar kl. 13:30 í sal Öldrunarheimilisins Hlíðar. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og er aðgangur ókeypis.