Í Landanum var rætt við Arndísi Bergsdóttur, safnafræðing og doktorskandídat, sem hélt nýverið síðasta erindið í fyrirlestraröðinni þar sem hún fjallaði um konurnar í verksmiðjunum á Akureyri. Einnig var rætt við Margréti Guðmundsdóttir, sagnfræðing og stjórnarformann AkureyrarAkademíunnar, um tilurð og framkvæmd verkefnisins og sýndar svipmyndir frá akademónum við vinnu sína. Hægt er að horfa á þáttinn í Sarpnum fyrir þá sem misstu af þættinum eða með því að ýta á myndina.
Í vetur hefur AkureyrarAkademían í samstarfi við Öldrunarheimilin á Akureyri staðið fyrir fræðandi fyrirlestrum á Hlíð. Verkefninu hefur verið vel tekið af heimilisfólkinu á Hlíð, bæjarbúum og fræðimönnunum sem hafa flutt erindin. Það hefur hlotið styrki frá Norðurorku og úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA og sunnudagskvöldið var fjallað um verkefnið í Landanum á RÚV.
Í Landanum var rætt við Arndísi Bergsdóttur, safnafræðing og doktorskandídat, sem hélt nýverið síðasta erindið í fyrirlestraröðinni þar sem hún fjallaði um konurnar í verksmiðjunum á Akureyri. Einnig var rætt við Margréti Guðmundsdóttir, sagnfræðing og stjórnarformann AkureyrarAkademíunnar, um tilurð og framkvæmd verkefnisins og sýndar svipmyndir frá akademónum við vinnu sína. Hægt er að horfa á þáttinn í Sarpnum fyrir þá sem misstu af þættinum eða með því að ýta á myndina. |
Eldri fréttir
January 2023
|