Síðastliðið vor stóð AkureyrarAkademían fyrir Konur upp á dekk! Um var að ræða tveggja daga samræðuþing með það að markmiði að hvetja konur til þátttöku í sveitastjórnarkosningunum 2018. Ýmsir sérfræðingar voru kallaðir til sem fóru yfir þá þætti sem skipta máli og tengjast þátttöku í stjórnmálum en þátttakendur lögðu ekki síður sitt af mörkum í að miðla af sinni þekkingu og reynslu. Á Vorkomu stjórnar Akureyrarstofu sem haldin er á sumardaginn fyrst, eru veittar viðurkenningar til stofnanna, einstaklinga, félaga eða fyrirtækja sem hafa að mati frístundaráðs staðið sig best við framgang jafnréttismála á Akureyri. Það var okkur í AkureyrarAkademíunni mikill heiður að hljóta viðurkenningu Akureyrarbæjar fyrir verkefnið Konur upp á dekk! |
|
Eldri fréttir
January 2023
|