RÁÐSTEFNUKALL: kallað eftir tillögum að fyrirlestrum
Enginn er eyland:
Ísland og alþjóðasamfélagið – staða og framtíð Íslendinga í samfélagi þjóðanna
Háskólinn á Akureyri 19. mars 2016.
AkureyrarAkademían og Háskólinn á Akureyri boðuðu til ráðstefnu um Ísland og alþjóðasamfélagið. Fjallað var um Ísland í samfélagi þjóðanna á breiðum grunni þar sem fram komu ólík viðhorf fræðimanna, embættismanna og félagasamtaka til málaflokksins. Ráðstefnunni var ætlað að vera vettvangur fyrir umræðu um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu því staða, áhrif og hagsmunir Íslands í alþjóðasamskiptum væru mikilvæg viðfangsefni, bæði í nútíð og framtíð.
Fyrirlestraefni sem koma til greina:
- Þróunarsamvinna og áhersla stjórnvalda, flóttamenn, innflytjendur, jafnréttismál, hælisleitendur og hjálparstörf á Íslandi.
- Afstaða stjórnmálaflokka og hagsmunasamtaka til NATO, ESB, EES, EFTA, Norðurlandasamstarfs (Norðurlandaráð) og Sameinuðu þjóðanna.
- Samfélag á norðurslóðum: umhverfismál, frumbyggjar, auðlindir og lagaumhverfi, stjórnmál, siglingaöryggi, stofnanir og lagaþróun norðurslóða.
- Utanríkismál, varnar- og öryggismál: þverpólitísk þjóðaröryggisstefna; samstarf við NATO, Bandaríkin, Evrópu og Norðurlönd; Schengensamstarf: alþjóðaglæpastarfsemi og hryðjuverk; efnahagsöryggi, siglingaöryggi, netöryggi, umhverfisöryggi, öryggi á norðurslóðum, náttúruvá og sjávarskaði.
- Alþjóðaviðskipti Íslands: samskipti við Evrópu (EES og ESB), viðskiptatækifæri í Asíu, Fríverslunarsamningur við Kína, viðskipti við Bandaríkin, fiskútflutningur til Rússlands og viðskipti við Norðurlönd.
- Orðræða og alþjóðasamskipti í íslenskum fjölmiðlum: ímynd Íslendinga á alþjóðavettvangi; stjórnmál, hvalveiðar, menning, náttúra, ferðamennska og jafnréttismál (staða kvenna).
Til greina koma þverfaglegir fyrirlestrar á sviði alþjóðasamskipta, nútímafræði, fjölmiðlafræði, sagnfræði, heimspeki, stjórnmálafræði, mannfræði, smáríkjafræði, norðurslóðafræði, lögfræði og viðskiptafræði.
Útdrættir mega ekki vera lengri en 250 orð og skulu sendir á netfangið jakobkr@simnet.is eigi síðar en 6. desember 2015.
Útdrættir mega ekki vera lengri en 250 orð og skulu sendir á netfangið jakobkr@simnet.is eigi síðar en 6. desember 2015.
Nánari upplýsingar veita Jakob Þór Kristjánsson, jakobkr@simnet.is Skafti Ingimarsson, ski2@hi.is Guðmundur Árnason, gudmundurarnason@simnet.is og Kristín Margrét Jóhannsdóttir, kristinj@unak.is .
Ráðstefnuna halda Háskólinn á Akureyri og AkureyrarAkademían í samstarfi við utanríkisráðuneytið.